Hádegisverður með akademíunni
Það varð ekki hjá því komist að ég træði núðlum í meltingarfærin með yfirmönnum undirdeildar (B.A) og yfirdeildar (M.A.) hjá alþjóðatengsladeild Boston Háskóla.
Báðir eru íslandsvinir í fyllstu merkingu þess orðs. Annar þaðan ættaður. Hinn með landið á heilanum. Draumur allra íslendinga. Mike Corgan og Erik.
Corgan er sá sem var á stöðinni. Rauðbirkinn, sköllóttur til hálfs með strjála flóru beint ofan á kollinum sem öll vísa til vinstri eins þreytt ílustrá í íslenskri norðangolu. Hans mesta stolt er að hafa verið mistekinn fyrir bónda úr fljótshlíðinni. Átti sér stað í sjoppu fyrir vestan. Bóndi þessi þekkir alla elítuna heima: forseta, ráðherra, aðstoðarmenn ráðherra, sagnfræðinga og aðra stjórnmálavitleysinga. Honum þykir afar gaman að þekkja þá og troða kanaglyrnum sínum inná alþing bakdyramegin. Slíkt er í frásögur færandi vestanhafs á Tælenskum núðlustöðum. Íri eins og Dave. Málglaður mjög. Fínn karl.
Erik er ættinginn. Hann spurði mig hvað ég gerði áður en ég hóf nám. Ég svaraði eins gáfulega og mér var unnt, sagðist hafa verið að vinna. Jæja, sagði hann þá, vinna. Jæja. Svo var þeirri umræðu lokið og mannauminginn spyr sig í huganum hvernig í ósköpunum hann hafi hleypt mér í deildina sína. Erik er hávaxinn og ólíkt íslandsvini sínum hærður vel og höfuðstór. Framúr upphandleggjum hans teygja sig kvenlegar, hvítmjúkar og dvergvaxnar hendur. Undir nöglunum voru misþykkar skítarendur, þær skömmuðust sín kannski. Hendurnar. Það var eins og þetta væru helgarhendur, sem hann skrúfaði á um hádegisbilið á föstudögum og skildi vinnuhendurnar eftir á skrifstofunni. Helgarhendurnar höfðu ekki fengist í öðru númeri en 36.
Við ræddum íslandsheimsóknir, svívirðileg flugmiðaverð, Flugleiðir, Reykjavík. Nokkrar gamansögur fengu að fylgja með. Þær höfðu flestar átt sér stað á íslandi. Að minnsta kosti tveir óviðeigandi brandarar ultu út úr mér. Fljótshlíðarbóndinn hakkaði hláturrokur mér til léttis. Helgarhendurnar iðuðu og nudduðu. Hendur er víst húmorslausar.
Þetta verður endurtekið reglulega á næstu mánuðum. Smáskammtalækningar af borgfirskri prófessorsdömu við háskólann og íslenskum nema úr undirdeild munu fylgja með.






<< Home