föstudagur, mars 04, 2005

Göllerí List

Þið hafið kannski heyrt um appelsínugulu hliðin hans Christo sem sett voru upp í New York borg. Þetta eru tímabundin verk sem ætlað er að vera upplifun og minning. Þau eru víst á niðurleið.

Sjálfri lýst mér öllu betur á Somerville hliðin. Somerville er úthverfi af Boston. Þessari sýningu er einnig lokið. Það er hægt að sjá myndir hérna.* Kexin eru líka nokkuð góð.

Eins og þið öll vitið er ég listræn hið innra. Nú er ég einnig, tímabundið, listræn hið ytra. Ég breikkaði sjóndeildarhringinn útfyrir appelsínugult og blandaði mína eigin liti. Ólíkt listamönnunum sem nefndir hafa verið hér að ofan, notaði ég eigin líkama sem minn striga.

Takið sérstaklega eftir hvernig ég merkti mér eigin hnjálist með upphafsstafnum mínum.

Það fer hver að verða síðastur að berja þessa hverfulu list augum.








Agla segir að þegar maður lærir um list fari maður að sjá mun á sköpunarverkum þeirra sem skólagengnir eru í þeim geira og hinum sem gera þetta allt á innblæstri og hæfileikum. Ef þið þekkið listlært fólk þá þætti mér forvitnilegt að vita í hvorum flokknum það myndi telja mig.

* Útgáfu 7 af Flash þarf til að skoða.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com