miðvikudagur, mars 16, 2005

Frosthörkur og vetrarþjáningar

Ég uppgötvaði nýjan strætó um daginn. Strætó númer 4. Hann kemur nánast upp að dyrum hvar ég vinn og stoppar fyrir utan chez Davíð. Þetta er auðvitað stórkostlegt þar sem snjókoma og frosthörkur hafa sett hér met á hægri og vinstri í vetur og slá íslendingum og íslensku veðurfari svo sannarlega við í metsetningum.

Svona hefur t.d. verið umhorfs að öllu jöfnu einu sinni í viku.





Afleiðingarnar eru þessar:


Okkar bíll



Bíllinn hans John. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað hann var lengi grafinn og notkunarlaus.


Það tók okkur Dave, saman, tvo og hálfan tíma að moka okkur út. Þetta varð eins og krúttlegur lítill hellir. Svo setur maður stól eða ruslatunnu í bílastæðið og tekur það frá.








Sú var tíðinn að fólk gat haldið sínu stæði þar til snjórinn var bráðnaður í lítil drullustrik á malbikinu. Það er gjörsamlega óþolandi og sérstakt málefni sem ég tek sérstaklega að mér að kvaka yfir.

Borgarstjóranum fannst þetta líka óþolandi og sendi ruslabíla um hverfið á hverjum degi í desember og janúar og tók drasl úr bílastæðunum. Þá varð uppi fótur og fit í suður Boston og íbúar þar tilkynntu kotrosknir að þeir ættu meira af gömlum viftum, stólum, skrifborðum, hillum og dýnum til að skvera í stæði, en yfirvöld gætu haft við tína upp. Svo var gert samkomulag og nú má maður halda stæðinu í fimm daga frá mokstri. Við vorum ekki viss hvort borgarstjórinn myndi standa við þetta og tókum sénsinn. Skyldum eldhússtólinn eftir í stæðinu á sjötta degi. Nú eigum við þrjá eldhússtóla. Það er allt í lagi þar sem þeir eru síðan Carter var forseti og kattliðugri en ég (jafnvel eftir tvo mánuði í stöðugri rækt. Hana, gat komið ræktinni og ræktarsamviskusemi minni að. Annars stæði ég varla í þessu bloggi).

Það snjóar að meðaltali 1 fet, jafnvel 2 (30-60cm) í hverri snjókomu og hafa þær verið örar. Svona var umhorfs í down town suður Boston í síðasta mánuði.





Það þýðir ekkert að stóla á bílinn sinn. Hann er á kafi aðra hverja viku, skafan er brotin og þá þarf maður að keyra af stað í blindu. Það þýðir ekkert að láta bílinn hitna fyrst. Þessar frönsku druslur koma sér ekki til fyrr en í akstri. Ef boðið væri upp á mannsæmandi veður gæti ég labbað úr vinnunni og til Dave.

Stóla á almannasamgöngur í staðinn. Aftur að strætó númer fjögur. Aðalvandamál strætós númer fjögur er að það fer eftir dyntum hvort hann kemur eður ei. Bílstjórarnir virðast ráða förum sínum og stoppistöðvum. Þýðir sko ekki að argast í þeim. Þeir eru þá nýjir eða segja að leiðin sem strætóinn fer breytist á hverjum degi.

Í gær uppgötvaði ég afhverju hún breytist á hverjum degi. Ég var ein og bílstjórin spurði hvort ég tæki þessa leið oft. Jú, ég þóttist fastagestur. Myndi ég þá vinsamlegast standa frammí hjá henni og segja til vegar. Hún væri búin að keyra númer fjögur í tvo mánuði en væri bara alls ekki viss hver rétta leiðin væri og væri búin að villast í hverri viku um alla Boston.

Farið er venjulega 90 sent. Ég fékk 10 senta afslátt fyrir leiðsögn.
"Já, nú ættirðu að halda þig við vinstri akgrein því þú tekur næstu vinstri beygju, þarna ofan frá. Nei, það eru enginn stopp fyrr en við aðallestarstöðina. Já, svo er næsta stopp þar á eftir við höfnina. Ég fer þar úr. Þú vilt kannski bíða þar í eins og 10 mínútur, þessi strætó virðist gera það. Ég veit ekki afhverju. Já, og núna til hægri og keyrir hér svo smá spotta og þá næst til vinstri. Já hvað segirðu, er litla frænka þín að fara halda partý? Nú, og hún ætlar að kaupa nýjan kjól bara. Já, já, en gaman."

Eins gott að vorið komi og það STRAX. Ef það kemur ekki í þessari viku þá er ég pottþétt mikið farin að sakna hlýju vetrarvindanna á Íslandi. Kemur sér vel að Miami ferðin hefst á miðvikudag. Kemur sér ekki eins vel að ég þarf þá að striplast á bikini.

P.S. Langar einhvern að hitta nokkra kana á djamminu í Maí og taka þá á heitustu staðina? Það myndi varpa jákvæðu ljósi á mig og mín sambönd í höfuðborginni. Yður gæti þá verið boðið með í jeppaför upp á hálendið á sunnudeginum.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com