mánudagur, febrúar 13, 2006

6984 klukkustundir

Í dag eru fimm dagar síðan Dave leyfði mér að taka niður jólatréð, og 291 dagur þar til það verður sett aftur upp.

Maðurinn minn er 34 ára og ég varð að dekstra hann svo jólin fengju að enda í febrúar. Hann hjálpaði mér ekki, en ég fyrirgef honum. Ég held hann hafi ekki haft taugar í það. Og þar sem ég hef framúrskarandi jólasmekk skil ég vel að honum hafi verið sárt um tréð.

Trénu var pakkað í risa plastpoka í stofunni og svo laumuðumst við með það út á gangstétt seint um kvöld. Vildum ekki láta nágrannana nappa okkur. Maður verður að skammast sín svolítið fyrir sterkar tilfinningar og veikan vilja þegar það kemur að jólaskrauti.

Ég þori að veðja að enginn annar bloggar um jólaskraut á þorranum. En það er kannski vegna þess að enga hef ég hrútspungana, hárkarlinn eða sviðasultuna til að dreifa huganum og ergja magann.

Ég er að hugsa um að verða mér útum netteljara til að merkja dagana 291. Það gæti orðið verulega spennandi.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com