Hálf til ein málsgrein
Hvernig stendur því að ég get ekki komið nokkru frá mér í eins og hálfri málsgrein?
Eigin kenningar:
A) Maðurinn minn er svo málglaður. Ég er málbæld heima hjá mér og fæ hvergi útrás nema á prenti.
B) Mér finnst ég sjálf skemmtileg.
C) Ég hef mjög mikið að segja.
Úrlausn:
Kenning C úr leik. Það kemur ekki til hálfra né heilla máls-greina að ég hafi svona mikið að segja.
Ég enn að velta kenningu B fyrir mér.
Heimsókn Tommy, bróðir Dave, og þýsku konunnar hans frá Þýskalandi hefur algerlega staðfest kenningu A. Tommy talar 17 sinnum meira en Dave. Hann hlustar 50 sinnum minna. Hann talar að manni, ekki við mann. Hann talar fyrir konuna sína. 80% af öllu sem hann segir er augljós lygi. Konan hans leiðréttir 19% af hinum 20%. Maður verður svo að reyna giska á hvert er eitt af þessum hundrað skiptum sem er heill og sannur sannleikur. 90% setninga hans byrja á: In Germany...
Niðurstaða: mismunur á þeim bræðrum er stigs- ekki eðlis-munur. Mér til léttis byrja engar setningar hjá Dave: In Iceland... Eða: In the US...
Konan hans Tommy er líka málbæld. Hún er málbældari en ég. Ég finn mig knúna til að setja upp bloggsíðu á þýsku fyrir hennar hönd.
Pæling: Er hálf málsgrein stutt setning eða er stutt setning sem stendur ein ennþá heil málsgrein?
Hvað teljast þetta þá margar málsgreinar hjá mér núna? Fleiri, af því ég klippi stuttar setningar í málsgreinar? Eða bara jafnmargar en ósamanþjappaðar?
Áf vídezein.

<< Home