Grimmd Rauða Krossins
Þú veist að þú vinnur hjá góðgerðarstofnun þegar...
...þú verð heilli viku í nýju vinnunni án aðgangs að tölvu eða síma.
Von er á netfangi fyrir jól.
Einhverra hluta vegna tók Rauði Krossinn frá minnsta básinn í öllu húsinu sérstaklega handa mér. Þar er inní er mikilsverður burðarbiti á stærð við rómantíska sturtu fyrir tvo og stútfullur skjalaskápur sem enginn kannast við. Dag hvern kúrir aldin, ótengd og ónothæf tölva á skrifborðinu mínu, með skjá, hátölurum og lyklaborði auk sambandslauss síma, með tóli sem ekki er tengt við síman sjálfann. Eins og til að núa mér um nasir. Ó, hvílík grimmd.
Að svo stöddu hef ég ekki komist yfir heftara, gatara, bréfaklemmur, penna eða vinnupassa með mynd af mér og frunsunni.
Ég vona að mér hlýni brátt um hjartarætur við að hjálpa þeim sem minna mega sín.
Góðar stundir.

<< Home