mánudagur, desember 05, 2005

Spurning I

Þegar íslenskir gestir vorir voru í heimsókn fengu þeir innsýn inn í líf mitt erlendis.

Þar fór í verra.

Árum saman hefur mér tekist að telja öllum trú um að hér lifði ég hámenntuðu lífi konu á framabraut, gegnsósa af menningu og listum, með einungis léttu kurli af stjórnmálum, og djúpum heimspekiþönkum.

Hulunni hefur verið svipt af tilveru minni.

Umræðuefni á dæmigerðu miðvikudagskvöldi:

Hvort myndirðu heldur vilja vera með:
  1. apalíkama og þinn heila; eða
  2. apaheila og þinn líkama.

Vinsamlegast rökstyðjið svarið.

Hvet ég hvert mannsbarn að taka þátt.

|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com