Reynslusaga fórnarlambs
Þetta fékk ég í tölvupósti í gær, birt með leyfi höfundar gegn loforði um nafnleysi:
"Ég var að labba heim og þurfti að fara yfir smá tún. Þá kemur að mér einstaklingur og kemur mjög nálægt mér og ég segi bara "góða kvöldið" og þá treður hann sér alveg upp að mér og segir "ha!" Ég leit framan í hann og verður svo litið niður og var þá ekki vinurinn útum buxnaklaufina. Ég alveg: "HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA MEÐ TYPPIÐ HANGANDI ÞARNA ÚT?" Þá varð hann rosa hissa á svipinn og sagði "hann datt bara út." Ég fussaði og hélt áfram göngunni, tautandi: "reyndu nú að halda honum inni." "
Skammaði hann bara eins og hún væri mamma hans, voða pirruð. Óþolandi svona ónæði.






<< Home