fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Orð dagsins

Í síðasta bloggi, hvar Þorrinn kom við sögu, þurfti ég að fullvissa mig um að Þorrinn ríki einmitt núna. Lenti ég þá á síðu er kallast Orð dagsins. Óumflýjanlega hef ég verið að velta fyrir mér hvort ég ætti að hafa orð dagsins á blogginu.

Þar sem orðaforði minn fer óðum minnkandi gætu orð dagsins orðið í lakara lagi. Ég finn mig knúna til að biðjast afsökunnar á því hér og nú, þó svo Orð dagsins hafi ekki orðið að veruleika og verði kannski aldrei.

Orð dagsins er enn á hönnunnarstigi og þarf ég að komast að niðurstöðu um hvort ég myndi byrja á flóknum orðum eins og "kúluskítur"*, áður en ég gleymi þeim öllum, eða hvort ég ætti að hita upp með einföldum orðum. Sem dæmi mætti nefna "og," "eða," eða "já." Ef ég ætti íslenska orðabók eða stafsetningarbók eða bók um íslenska tungumálið gæti ég hundsað þætti á Rás 1 og haft mína eigin umfjöllun um orðsifjar.

Ómögulegt er að segja til um hvort yrði meira spennandi, orðsifjarnar eða jólatrésteljarinn.


*Kúluskít hef ég enn ekki fundið nýja merkingu, aðallega vegna þess að ég gleymdi að ég hafði um það stór plön. Í það minnsta tókst mér rétt í þessu að vitna enn og aftur í sjálfa mig. Slíkt gefur lífinu jafnvel enn meira gildi en naflaskoðun og fágunarvonir hverskonar.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com