Týndi kúkurinn
Ég passaði Nínu og Pedro um helgina. Hér taka þau lagið.
Áður en ég fór í vinnuna í morgun trítluðum við þrjú í morgunstund í almennigsgarðinum ofar í götunni. Sá er vinsæll meðal hundeigenda og útvistarunnenda. Það besta við garðinn eru moskítóflugur, það versta fólk sem hreinsar ekki upp eftir hundana sína. Maður þarf að ganga um með (grænlands)ennið á jörðinni eins og týnst hafi eyrnalokkur.
Það var 90 stiga hiti í morgun og ég þurfti að ná loftkældum strætó í vinnuna. Nína og Pedro voru vonum framar tillitssöm og pissuðu strax. Mér til mikillar hamingju kúkaði Nína 30 sekúndum síðar. Nína sjálf er á stærð við hausinn á mér og afurðin jafnaðist á við litlu tá. Eftir að hafa þefað vel að framleiðsu Nínu fikraði Pedro sig í burtu í leit að hinum fullkomna stað til að létta af sér birgðum gærdagsins.
Það er ekki vandalaust að finna slíkan stað. Lyktin þarf að vera akkúrat, rakastig jarðar ásættanlegt, grasvöxtur í meðallagi og aðrir hundar í að minnsta kosti fimmtíu feta fjarlægð. Þetta getur tekið upp undir fimm mínútur að samstilla.
Þá jafnar maður bilin á afturfótunum, setur á sig rosalega kryppu og horfir aulalega til himins.
Þegar Pedro var búin áttaði ég mig á því að hann hafði dregið mig langt í burtu frá þeim stað er Nína hafði átt sína stund. Þegar ég fikraði mig aftur til baka, skannandi grasvörðinn, varð mér ljóst að kúkur Nínu var með öllu horfinn.
Ég gat ekki verið þekkt fyrir að skilja eftir kúk í garðinum svo ég eyddi næstu 12 mínútunum í leit að kauða.
Ég hef aldrei áður leitað að kúk sem ég var ekki að forðast. Ég hef aldrei áður týnt kúk.

<< Home