Músíktilraunir
Fyrstu vikuna í febrúar spilaði hann bassastef í sífellu.
Í vikunni eftir bætti hann við einhverskonar píanóundirtón.
Þriðja vikan sportaði klappi í takt.
Nú síðast hefur hefur rappið sjálft loks bættst við.
Hann leggur sig venjulega í sjúkrarúmi í einni kennslustofunni eftir klukkan 15:00, er stoltur yfir að bera alls ekki virðingu fyrir yfirmanninum og dæmir alla sem vinna eða vilja láta líta svo út. Hann er tónlistarmaður með hæfileika, eða svo hefur hann tjáð mér, sem vinnur hiklaust í sinni músík á launum.
Gemsanum svarar hann: You have reached UnderPressure Productions.
Hann notar ekki heddfóna og hlustar oft á útvarpið. Svo finnst honum skemmtilegt að tala í símann. Þar ræðir hann músík sem hann ætlar að senda til útvarpsstöðva og hvernig hann ætlar að fiffa til hitt og þetta lag. Hann gefur einnig heilræði í barnauppeldi fúslega símleiðis. Reyndar býr hann yfir margskonar skoðunum sem útdeilt er frjálslega milli níu og fimm.
Hann situr í básnum ská á móti mér.
Í básunum við hliðina og á móti sitja tíðir útvarpshlustendur. Stundum hlusta þau öll í einu.
Það hafa víst bara 5 lög verið vinsæl síðan í byrjun janúar.
Ég hef tekið upp á því að telja hversu oft á dag ég heyri þau. Vinninginn hefur You're Beautiful með James Blunt, sem heyra má að meðaltali fjórum sinnum á dag. FJÓRUM SINNUM Á DAG. Aldrei sjaldnar en þrisvar. Ég er farin að hlusta á ipodinn í algerri sjálfsvörn og treð tólunum skjálfandi í eyrun um leið og ég heyri fyrstu gítarstefin. Sendi Dave skilaboð í hvert skipti svo hann megi finna sem mest til með mér.
Hversu dásamlegt væri að vinna með heyrnarlausum.

<< Home