miðvikudagur, mars 08, 2006

Endurmenntun

Í dag fór ég á endurmenntunarnámskeið. Þar átti ég að læra ýmislegt þarflegt svo ég standi mig vel í atvinnugeiranum.

Fyrirlestrarnir voru þrír og gengu þeir misjafnlega.

Sá fyrsti var gagnlegur.

Fyrirlestur tvö var þarfur en hafði minna með mitt starf að gera.

Hinn þriðji hafði aðeins áhugavert í boði: Fyrirlesarinn var kona með liðað hár sem umlukti höfuðið á henni eins og miðaldra, en náttúrulegur, mótorhjólahjálmur, með þykkan topp fram á ennið. Engin lagning hér. Fyrirlestrinum eyddi ég í að stara á hárið á henni, opinberlega og í laumi. Var það rangt af mér?
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com