þriðjudagur, maí 16, 2006

Andhald

Maðurinn minn er áhrifagjarn. Þegar hann horfir á veruleika-lögreglu eða rannsóknarlögregluþætti þá fer hann á netið og athugar hvert aldurstakmarkið er til að ganga í lögregluna og hversu lengi það tæki að verða rannsóknarlögregla. Þegar íraksstríðið hófst með tilheyrandi blaðamönnum í skotheldum vestum, hangandi utan á skriðdrekum, kenndi hann mér um að hafa kynnst honum og komið í veg fyrir blaðamannaferil hans erlendis.

Þegar honum blöskrar stjórnmál og stjórnmálamenn íhugar hann vandlega hvort hann gæti hugsað sér að kyssa lítil börn og tala um hvernig hann ætlaði einmitt að gera heiminn/landið betra, ólíkt öllum öðrum stjórnmálamönnum.

Hann hefur líka talað um að vera geimfari.

Um daginn horfðum við á þátt með David Blaine, sem hékk í glertanki fullum af saltvatni í heila viku. Svo ætlaði hann að slá heimsmet og halda niðri í sér andanum í 9 mínútur. Þættinum lauk með að honum tókst einungis að halda andanum í 7 mínútur.

Velti Dave fyrir sér hversu lengi hann gæti haldið niðrí sér andanum. Hafði hann 40 andlausar sekúndur uppúr kafinu. Ég var andlaus í 1 mínútu og 40 sekúndur. Hann segir að ég geti lengur en hann því hann sé vöðvabúnt sem þurfi að koma súrefni í meiri massa af kjöti. Slík óvænt strik í reikninginn komi ekki upp í mínu tilfelli.

Hann æfir sig nú á hverju kvöldi. Er komin uppí 1 mínútu og 5 sekúndur. Ég býst við að ég þurfi ekki að æfa mig fyrr en hann nær 1.35.

Hef samt ekki áhyggjur. Þekki minn mann og veit að svona æði ganga yfir á rúmri viku eða svo.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com