miðvikudagur, nóvember 05, 2003

Frambjóðandinn

Í gærkvöldi var kosningakvöld. Við skötuhjúin sátum fyrir fram sjónvarpið, kampavínslaus, og biðum úrslita.

Dave hefur nefnilega gerst stjórnmálamaður. Það hefur verið hörð kosningabarátta hér í Boston síðasta mánuðinn þar sem stjórnmálaspírur hafa glennt sig á alla kanta og barist um athygli pressunnar. Í veði voru sæti í bæjar og borgarstjórn.

Minn maður tók annan pól í hæðina. Hann auglýsti sitt framboð ekki. Hélt því leyndu fram á síðustu stundu svo hann var ekki einu sinni prentaður á kjörseðil. Hann hafði ekki í hyggju að kjósa sig sjálfan og vissi reyndar ekki að hann væri í framboði fyrr en í kjörklefa kom.

Þannig er mál með vexti að hann er lítið fyrir landshlutafréttir. Landsmálin eiga hug hans allan svo fréttir um ketti uppí trjám eða næstum því stolinn bíl neðar í götunni eiga helst ekki upp á pallborðið. Það er helst ef sætur hundur birtist á skjánum að hann tekur eftir. Svo bæjarpólitík fer framhjá honum. Þó getur hann ekki setið á sér að kjósa.

Minn maður á netið og skoðar þessa kandídata sem hafa hringt og talað til okkar af segulbandi. Vinsamlegast kjósið mig. Minn maður fann þrjá sem hann gat hugsað sér að kjósa. Eða kannski hafði hann ekki þolinmæði í að skoða nema eins og þrjá. Ég skal ekki segja.

Þegar í kjörklefa var komið merkir minn maður við sína þrjá kandídata. En svo kemur í ljós að mælst er til að hann kjósi fjóra. Fjóra? Hvernig kýs maður fjóra þegar manni lýst bara á þrjá?

Jú, maður skellir sér í framboð og skrifar sjálfan sig á lista, á þartilgerða, auða kjörseðilslínu. Þar með er maður kominn í framboð.

Svo kemur maður heim og er mjög ánægður með sig. Svo hefst kosningabaráttan. Maður hringir í alla vini sína og sendir á kjörstað. X-Dave, vinsamlegast.

Svo sest maður eins og nýsleginn frambjóðandi fyrir framan sjónvarpið og sér til hvort maður kemst inn í bæjarstjórn. Kampavínslaus.

Pressan hefur ekki bankað upp á enn svo ég býst við að ég sé ekki frú David Dineen, Councilman at Large.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com