Krumpubuxur og axlapúðar
Við eyddum laugardagskvöldinu hjá Lance og Jen. Borðuðum góða steik. Til hafði staðið að drekka bjór og spila á spil. Þetta með spilin fyrirfórst. Lance hefur niðurhalað nokkur hundruð dúsin af lögum af netinu. Að auki er tölvan tengd við sjónvarpið hans sem er stór flatskjár. Svo er lyklaborð og mús á stofuborðinu. Við enduðum á því að rífast um músina og spila brot af uppáhaldslögunum okkar.
Ég hef komist að því að það er mér mikilvægt að grafast fyrir um hver eru uppáhaldslög vina minna. Hef ég því sett upp skoðanakönnun hér að neðan og ætlast ég til að þið veljið ykkar uppáhaldslag.
Mér er síður en svo í mun að könnun þessi sé vísindileg. Þvert á móti hvet ég til hlutdrægni og að þið kjósið sem oftast. Hafi ég gleymt mikilvægu tónlistarverki, endilega látið mig vita á skvaldrinu og telji ég lagið þess vert að vera í minni könnun mun ég jafnvel splæsa því við. Eins og venjan er með netkannanir mæli ég einnig með að þið fáið vini, fjölskyldu, vinnufélaga, hárskera og viðskiptavini til að taka þátt í þessari könnun.
Fái ég meira en 10 atvæði í þessari könnun, þá hefur hún borgað fyrir sig að fullu og öllu. Hvert atkvæði mun eiga sér sérstakan stað í hjarta mínu sem fallegt en mjúkt vináttuskot frá þér til mín. Þá þarf ég aldrei framar á æviferli mínum að senda internet keðjuvináttubréf.

<< Home