miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Göllerí List II

Okkur Dave langar að hafa svolítið af fallegum málverkum heima hjá okkur. Ég á nú þegar par að labba í skógi og par af íslenskum þumalputtum undir Skjaldbreiði.

Svo ég ákvað í gær að gerast leikmaður í listfræði. Blásin inn af málverki sem hangir hér í vinnunni (Seven Vermeer Corners).

Og blásin inn af málverkum sem konan sem vinnur í ræktinni (Maggie Connors) málar af líkömum á hreyfingu.

Ég tók niður nöfn á listamönnum sem mér líkar, hverra málverk eru stráð um ganga í vinnunni. Ég þyrfti að læra svolítið um hvað þykir flott núna og jafnvel aðeins um listasögu, liststefnur, penslatækni, penslaval og notkun lita til að skilja list betur.

Svo ég hóf störf á einhverri listavefsíðu. Fletti gegnum verk og reyndi að sjá út hvað mér þótti flott. Svo eigum við líka stóra bók um Leonardo Da Vinci heima. Ég hef skoðað allar myndirnar en auðvitað þarf ég að lesa betur um hverja og eina. Hversu gaman væri að geta bent á flott málverk og sagt: já þessi málari er undir áhrifum frá (innsetja verk frægs málara hér) og (innsetja tímabil) tímabilinu. Og þessi notar (innsetja einhverja málningartækni hér) og (innsetja málningartegund) og (innsetja einhverja sniðuga litablöndu hér). Já finnst þér ekki sniðugt hvernig hann nýtir skuggana?

Ég sé fyrir mér að kenna samstarfsmönnum eða viðskiptavinum um málverk á göngum fyrirtækisins þegar við löbbum á mikilvæga fundi: Já, þetta er frá árinu 1989, eftir Jobba Jóns en hann hefur nú snúið sér alfarið að því að leira öskubakka fyrir mömmu sína. Þannig gæti ég líka hulið vel að ég veit enn minna um fjármálageiran, sem ég starfa nú í, en um málverk og listasögu.

Hér er orðið ljóst að sjálfmenntun mín á listasviðinu entist fram að hádegi og ég get ekki nefnt neina málningarstefnu, málningartækni eða rætt hvernig eitthvað klassískt listalið hafði áhrif á eitthvað annað listalið. Ég veit ekki einu sinni hvort málarar geta nýtt skugga. Mér fannst það bara hljóma trúverðugt og það var það eina sem mér datt í hug þegar ég ætlaði að reyna bulla eina stutta málsgrein um listaverk.

Ég horfði reyndar á þátt um Gerði Helgadóttur í jólafríinu. Mér finnst flest hennar verka bara ljótt drasl.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com