þriðjudagur, júlí 26, 2005

Hjónabandsbuxur

Við hjónin vorum að fjárfesta í mótorhjóli, Triumph Bonneville.



Ég er greinilega ekki í buxunum í þessu hjónabandi. Ég hef staðið gegn þessum kaupum árum saman og taldi að hlustað væri á mig. Með hryggbroti fór allur grundvöllur valds míns. Dave mátti ekki kaupa mótorhjól því það er of hættulegt. Nú mátti ég ekki fara á hestbak, það er of hættulegt. Nema auðvitað að hann fengi mótorhjól.

Rennur mér í grun að þetta hafi allt verið orðaleikur og það eina sem staðið hafi í veginum fyrir mótorhjólinu hafi verið buddan, sem hefur fitnað síðan í haust.

Dave þurfti fyrst að taka skriflegt próf til að mega keyra og svo verklegt. Eftir það skriflega mátti hann keyra farþegalaus í dagsbirtu. Það var mikið rætt um verklega prófið. Ég tók jú bílpróf hér í fyrra og því sérhæfð. Hélt ég að það yrði erfitt. Hann ætti í raun að keyra með hanska og sérstök hlífðargleraugu, hélt ég að það væri vesen ef hann væri ekki með sérstakan búnað. Taldi ég að löggan sem tæki prófið myndi gera það erfitt bara til að vera leiðinlegur. Hverjar voru líkurnar á að það myndi rigna. Hver er spáin? Hefur spáin breyst? En núna?

Þetta var diskúterað fram og til baka.

Prófið var enn einfaldara en bílprófið mitt. Hann keyrði niðureftir á hjólinu. Með Beyonce sólgleraugun mín og lóðalyftingagrifflur fyrir hanska. Löggan/prófdómarinn spurði hann ógnandi hvort hann hefði keyrt þangað sjálfur. Já er það svo? Jæja vinur, ég ætlaði nú bara að láta þig rúnta aðeins um þarna á bílastæðinu en ég geri ráð fyrir að það sé erfiðara að hafa keyrt hingað. Þú hefur staðist þetta mótorhjólapróf.



Dave keyrði heim. Svo keyrði hann mig í vinnuna í morgun. Ég var ekki í pilsi. Ég var ekki heldur í hælaháum skóm. Var í svörtum pumaskóm í staðinn með vinnuskó í töskunni. Mér finnst ég helst ekki geta verið á hjólinu í dragt og hælum. Ég samt ekki yfir það hafin, svona í framtíðinni, þegar ég hef vanist því að vera mótorhjólaskvísa. Og ég víla ekki fyrir mér að nota glansandi hjálminn sem spegil, þegar ég tek hann af, til að laga á klesst hárið. Fyrir utan skrifstofuna.

Ætli leðrið sé ekki næst.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com