þriðjudagur, september 06, 2005

Þrjú til fjögur merki öldrunar

Lykilorð: Líkamsrækt, læknar og ofnæmi, kvartanir.

Ég hugsaði fyrir nokkrum árum að ég yrði að fara rækta vöðvana reglulega því skjótt kæmi sá tími sem allt vildi leka suður og að jörðu aftur verða. Eftir ýmsar frestanir sem samanlagt slefa í áratuginn er ég loks í ræktinni. Mér finnst vöðvarnir ræktast eitthvað illa og láta standa á sér. En fyrst ég er reglulega í ræktinni, þá hlýtur að vera farið að síga á seinni hlutann hjá mér.

Ég merki aldur minn ennfremur á því að nærvera lækna í lífi mínu hefur snaraukist og hef ég undanfarið verið í yfirhalningu. Þar sem ég hef mest megnis verið án lækna í langan tíma var ég búin að safna upp svo mörgum kvillum og kveisum að ég hafði tvo heimilislækna og þrjá sérfræðinga uppúr kafinu.

Fyrst þurfti að skoða skuggalegan fæðingablett. Hann ógnar víst ekki lífi mínu að svo stöddu. Næst þurfti að skoða hjartað en þar má heyra einhver óhljóð. Hjartagalli er ættgengur í minni fjölskyldu og svo þóttist ég greina merki þess að mér væri aðeins illt í hjartanu líka. En það var þá víst bara gas. Enginn hjartagalli hefur fundist. Hjartað hefur bara svona hátt.

Svo hefur ekki verið tékkað lengi á bakflæðinu sem ég fór í uppskurð fyrir. Ég hef nú pissað í ótal dollur sem ótal sérfræðingar hafa dýft í og ræktað sýni úr. Svo þurfti ég í sneiðmyndatöku af nýrum og blöðru. Það var nú gaman. Blaðran er í góðu standi og nýrun í voða góðu standi líka. Við skulum gefa þeim gott klapp.

Svo hef ég komið mér upp að minnsta kosti tveimur ofnæmum. Síðan í Apríl hef ég fengið að meðaltali eina hálsbólgu í mánuði. Fyrsti heimilislæknirinn sagði að ég væri rugluð og með sínussýkingu. Hann setti mig á pensilín. En nú er ég svo öldruð og búin að taka svo mikið af pensilíni um ævina að ég hef komið mér upp ofnæmi fyrir því. Fyrst fannst mér það nú bara vera eitthvað bull og tók allar nema eina pensilíntöfluna sem voru skammtaðar. Þá var ég að verða í framan eins og einhver hefði reynt að skafa af mér húðina með ostaskera.

Svo skipti ég um lækni. Nýji læknirinn hefur tjáð mér frjóofnæmi. En ég er úr sveit? Og hef aldrei verið með ofnæmi! Of mörg ár af pensilíni + enn fleiri ár af frjókornum = enn eitt aldursmerkið.

Aðalaldursmerkið, til að gera langa sögu bara rúmlega miðlungslanga, er að nú hef ég síðan í vor rætt samviskusamlega hvar mér er illt og hvað læknirinn sagði. Enn fremur: í hvaða prufur ég er nú að fara, niðurstöður úr umræddum prufum, hvaða læknir er góður, hvaða læknir er fífl, hvaða lyf ég er að gleypa, hvaða lyf ég ætti kannski að gleypa og hvaða lyf mig langar til að gleypa.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com