fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Hégómi og ferðatöskur

Ég fer í mitt fimmta brúðkaup á ævinni um helgina, mitt eigið meðtalið, í Washington DC. Spurning hvort ég skrái það í brúðkaupskeppnina góðu.* Hér fer fólk að meðaltali í 4-5 brúðkaup á ári og telst ég með eindæmum heppin að allar mínar vinkonur og frændfólk sé á lausu eða lifi í synd. Já eða gifti sig í laumi.

Ég hef nú verið að analýsera frænkur mínar, hverra síður ég hef nú linkað hér á síðunni, og sé ég ekki frammá að vera boðin í brúðkaup þar á næstunni. Enda þætti þeim líklega óþægilegt að hafa mig í veislunni hvort sem væri, vitandi að ég væri að dæma þær stríðum straumum, berandi saman við eigin brúðkaup og annara, með stigagjöf, metingi, yfirlæti og hégómagirni á heimsmælikvarða.

Hvað er annars þetta Selfoss og hnakki? Ég skil stundum bara þriðja hvert orð hjá þeim og þarf að biðja ritstjóra II um þýðingu, enda á hún 15 ára frænku með allan kúl sjet mar orðaforða á hreinu. Að ég sé að reyna líkja eftir svona slangri er eins og miðaldra öldungaráðsþingmaður að tala eins og fitty cent.

Og talandi um hégóma. Hvernig stendur á því að ég get aldrei farið neitt með minna en tvær töskur? Það er alveg sama hvað ég ætla vera létt á því. Ég þarf þrenna skó, að minnsta kosti tvær buxur, pils fyrir æfingakvöldverðin (þetta lið þarf alltaf að æfa sig í að borða kvöldið fyrir kaupið), kjól í brúðkaupið, jakka, sjal og nokkra boli þar sem niðursull er ávallt tímaspursmál, brjóstahaldara í öllum litum til að passa við bolina. Að auki þarf ég málningargræjurnar til að viðhalda hégómanum, hárblásara og gel fyrir hið sama, sléttujárn ef ske kynni að hárið á mér sé í allar áttir eða ef ske kynni að það verði ekki í allar áttir og ég vilji demba því í allar áttir, bók, myndavél, ipod, hleðslutæki fyrir bæði. Mér finnst þetta aldrei nétt sérlega mikið í huganum en þetta kemur sér sem sagt ekki fyrir í minna en einni flugfreyjutösku og einni handtösku.

Dave tekur með sér eitt par af buxum og einar nærur. Hann gæti komið sínum farangri fyrir í peningaveskinu sínu, ef það væri ekki stútfullt alltaf af seðlum! Hann tekur líka með sér 3 pör af sokkum, 2 extra nærur, tannbursta og linsuvökva sem hann veit ekki af en hefur komið sér fyrir í mínum farangri.

Hann nöldrar alltaf yfir hvað ég ferðist með mikið af dóti. Svo hundskammar hann mig og röflar þegar ég hef ekki pakkað svitastiftinu og munnskolinu og öllu þessu pjatti sem hann þarf að nota á ferðalögum.


*Ég þarf helst að fara halda lista um hvað ég get vitnað oft í sjálfa mig. Ég er nokkuð örugg um að ég hef vitnað oftar í mig en aðra. Mér finnst ég sjálf greinilega skemmtilegust og þarf að fara vitna í aðra til að dylja þessa sjálfsumgleði aðeins betur.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com