miðvikudagur, júní 22, 2005

Hugleiðingar húsmóður

Ég var að velta því fyrir mér að gefa öllum atvinnuumsóknum fingurinn og eiga bara krakka og búa til kjötbollur.

Ég meina, er ekki fulllangt gengið að ætla kalla sig húsmóður ef maður:

Baðar engan nema sjálfan sig. Þá telst ekki með skiptið sem ég varð að þvo lappirnar á Dave í eldhúsvasknum. Sú tilfinning sem fylgir því að vera með fingurna á milli blautra tánna á annarri mannseskju er hvorki falleg né innileg.

Eldar aldrei fyrir fleiri en tvo og sjaldnar en 12 sinnum á ári, þ.m.t. jólasteikin.

Hefur ekki bakað síðan um fermingu.

Sendir allan þvott í þvotthús og skyrtur í hreinsun.

Straujaði síðast einhvern tíman í fyrra. Ég straujaði ekki einu sinni skyrtuna hans Dave fyrir brúðkaupið. Sagði honum að gera það sjálfum. Ég held mamma hafi endað á að strauja hana.

Sparkar vítamínpillum undir ísskápinn þegar þær detta á gólfið í stað þess að henda þeim eða éta. Ég þori ekki að lofa að það sé ekki lítil samkoma undir eldavélinni líka.


Ég er mjög ósátt við að það taki níu mánuði að eignast barn. Geng svo langt að kalla þetta óréttlæti. Ef ég ætla titla mig sem húsmóður þá þarf þetta að gerast strax. Ekki get ég sagt að ég sé heimavinnandi vegna þess að kannski muni ég eiga krakka á næsta ári. Ég væri sátt við að ættleiða ef ég gæti verið komin með krakka fyrir verslunarmannahelgi. Ég sé ekki fram á að það takist þar sem það er 2 mánaða ferli bara að ættleiða yfirgefinn hund úr hundaskýli.

Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að ég verði að drífa í þessu. Ég blogghoppaði nefnilega aðeins í dag. Það er stórhættulegt því maður veit aldrei hvað fólk er með á síðunum hjá sér. Á einni var til dæmis linkur í miðjum texta þar sem átti að vera mynd af blogghöfundinum að læra. Ég smellti þar án þess að hugsa mig um tvisvar og skyndilega birtist risastór píka á skjánum. Það eru að minnsta kosti 10 manns í beinu augnsambandi við skjáinn hjá mér.

Kannski verð ég rekin fyrir píkuskoðun. Ég vona að það verði 2-9 mánaða ferli svo ég geti komið mér upp einhverskonar húsmæðrastarfi á meðan.

Ég held annars að ég yrði mjög góð móðir. Ég er þegar farin að ganga á milli sjálfrar mín og Dave þar til ég fæ svar sem ég er sátt við.
Dæmi: Ég ákvað að eyða smá pening af sameiginlega visakortinu okkar sökum sjálfsvorkunnar. Setti mér 40 dollara þak. En bíddu hæg, vitum hvað Dave segir. Sendi honum meil og hann setti strax 100 dollara þak. 100 dollara þakið hans pabba er miklu betra en nískulega 40 dollara þakið hennar mömmu. Þetta sameiginlega visakort er án efa það besta sem komið hefur fyrir mig síðasta eina og hálfa árið.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com