Nærbuxnafíflið
Sumarið kom í síðustu viku og ég var komin með nóg af því á föstudaginn.
Ég er bara íslendingur með þröngar svitaholur. Þegar hitinn fer yfir 30 stig og rakinn er eins og í lokuðu fjósi í desember þá verð ég máttlaus/löt, eldrauð í framan og Dave heldur alltaf að ég sé veik eða að deyja.
Það er ekki farandi útúr húsi. Mamma verður aldrei þreytt að að skamma mig fyrir fölleikann. Hún sem notar tímann frá því að labba útúr húsi og inní bíl fyrir sólbað: slakar á andlitinu og beinir því að sólinni til að ná sterkustu geislunum.
Það er ekki verandi inni heldur. Núna eru um 25 stig úti en nálægt 40 hér inni. Samt eru allir gluggar opnir og gola úti. Ég skil þetta ekki. Ég má til með að klæðast einhverjum Victoria's Secret nærbuxum sem eiga að vera bæði krúttlegar og sexí en enda einhvern veginn alltaf að tveimur þriðja á milli rasskinnanna. Bolurinn á líka að vera krúttlegur og sexí og hann er það auðvitað ;-)
Mér finnst bjánalegt að striplast hérna um með alla glugga opna og lenda í beinu augnsambandi á nærhaldinu við einhvern bjána dælandi bensíni á bílinn á stöðinni fyrir utan.
Stuttbuxur í tísku? Mér finnst ég alltaf eins og hálfviti í stuttbuxum.
Í vinnuni er loftræstingin að drepa alla og ég er enn að nota hitarann undir skrifborðinu.
Já, sumarið er tími bjartsýni og góða skapsins :-)

<< Home