mánudagur, apríl 23, 2007

Nýtt líf

Það þurfti þáttaskil í lífi mínu til að ég byrjaði að blogga aftur.

Það vill svo til að ég fann


íslenskt súkkulaði

í búðinni fyrir helgi. Í Whole Foods, þar sem íslenska skyrið á að vera til sölu en er aldrei til sölu. Ég veit ekki hvernig en einhvern veginn rak ég augun í ólitríkan pappír suðusúkkulaðis. Rak upp bros og keypti 2 stykki.

Þegar heim kom batnaði lífið enn. Þetta var ekki suðusúkkulaði heldur venjulegt rjómasúkkulaði, í felulitum suðu.

Ég gaf okkur Dave strax bita. Svo faldi ég súkkulaðið fyrir Dave því hann er átvagl og getur engann veginn hamið sig. Svo stalst ég nokkrum sinnum í súkkulaðið sjálf.

Svo kláraði ég súkkulaðið.

Ef einhver gæti falið það fyrir mér, á meðan það væri enn falið fyrir Dave, þá væri þessi fjölskylda betri til heilsunnar.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com