mánudagur, ágúst 28, 2006

9 Skref til að verða skárri rokkstjarna

Á hverju þriðjudagskvöldi kýs ég Magna í auknum mæli. Mér finnst mér beri skyldu sem íslendingi í réttu tímabelti með hraða nettengingu til að dæla inn atkvæðum í akkorði. Mér þætti vænt um að Magni tileinkaði mér lag á árinu.

Ég horfði ekki á þessa þætti í fyrra en mamma átti líka fulltrúa þá. Hún hélt með JD frá upphafi vegna þess að henni fannst hann svo líkur Dave. Eftir að hafa skoðað kauða hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég búi með tvífara rokkstjörnu. Mér finnst það meiri tengsl við frægðina en ég átti tilkall til eftir að hafa séð stólinn hans Ed Harris á upptökusetti Gone Baby Gone neðar í götunni í sumar.

Hjónabandið hefur batnað um 25% síðan við mamma gerðum þessa uppgötvun. Mig langar að segja 30% en þar sem ég sé enn ein um að þrífa klósettið, baðkarið og öll gólfefni, sé ég mig knúna til að takmarka prósentugjöfina.

Dave á nú fimm nýja rokkaraboli. Á einum stendur eitthvað um New York, á öðrum er örn, bolir 3-4 eru með stöfum á og hinn fimmti sportar villtu mynstri. Það hefur reyndar komið á daginn að mynstrið er smekklegt tré í blóma og í því miðju er stórt fiðrildi. Vinsældir þessa bols hafa dvínað skart og kæmi mér ekki á óvart að rekast á hann sem borðtusku í framtíðinni. Ef hann þurrkar af borðinu.

20% bötnun í viðbót fengist með eftirfarandi aðlögunum:

  1. Hann mætti klæða sig eins rokkstjörnur á fertugs, fimmtugs og sextugsaldri: Hnepptur jakki utan um bera og innsogaða vömb og nýrakaða bringu (árangur myndi nást í um þremur umferðum með nýju túrbórakvélinni sem nota má í sturtu). Hann gæti notað jakkafatajakkann sem hann notar á lögfræðistofunni, bara sleppt hvítu skyrtunni og bindinu. Ég þyrfti að rífa frambærilegu gallabuxurnar frá JCrew og Banana Republic og hengja í þær nokkrar sterklegar keðjur. Restin af keðjunum færu um hálsinn. Kannski ein fínleg úr eyra í geirvörtu. Ef því verður ekki komið við: einn geirvörtulokkur.
  1. Blár augnblýantur við spennandi tækifæri myndi virkilega draga fram brúnu augun.
  1. Mér yrði persónulega stór greiði gerður ef hann notaði fleiri orð eins og dude, babe, whassup-babe, baby, right on, brothah og hell-yeah.
  1. Hárgelsnotkun ætti að auka með hraði áður en ennið verður jafnstórt og restin af andlitinu. Þegar það gerist verður allt hár rakað og og í staðinn ræktaður dverghökutoppur.
  1. Setja áberandi strípu í hárið. Litur má vera að eigin vali en ég er veik fyrir bláu, í stíl við augnblýantinn. Þetta ætti kannski heima í skrefi 4 en er nógu krjúsal til að standa eitt og sér.
  1. Ef ég byggist við skilnaði á næstunni myndi ég skikka hann til að tattúa gælunöfnin mín á brjóstkassann. Hitinn í hjónabandinu myndi aukast ásmegin ef little ducky, puppy, mús og litla túban mín væri prentað um hann þveran.
  1. Svakalega yrði ég líka lukkuleg ef hann gæti verið meira með sólgleraugu á kvöldin. Og hatt annars lagið.
  1. Vera oftar blindfullur, brjóta sófaborð (það er orðið svo gamalt), eldhúsborð og stóla (líka gamalt og einum stólnum var fórnað í hitteðfyrra fyrir bílastæði) og rífa öll mín föt eldri en tveggja ára (það kæmi sér vel), nema útifatnað (kæmi sér síður vel). Rífa enn meiri kjaft og vera á móti hvers konar hefðum, venjum og stofnunum. Hrinda konunni sinni á hurð endrum og sinnum, taka þátt í slagsmálum og nást nakinn á video af óviðkomandi.
  1. Reka útúr sér tunguna og galopna augun. Hér vandast málið. Hann er með litla og feita tungu og annað augað (títtnefnt dauða augað) er blint svo hann getur ekki alveg opnað það.

Ég veit að 10 þrep yrðu enn meira sannfærandi en það kemur á daginn að maður verður hooker sufficient með 9 skrefum.

Eftir þessar smávægilegu breytingar myndi Dave minn taka JD algerlega fram sem rokkstjarna og ég myndi fyrirgefa lagleysuna og þá staðreynd að hann kann ekki á eitt einasta hljóðfæri.

Ef Magni gæti tileinkað sér þessi skref væri hann stönginn inn.

|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com