fimmtudagur, júní 14, 2007

Súkkulaði og lakkrís?

Það er helst að frétta að ég faldi súkkulaðið fyrir sjálfri mér áður en við fórum til Kaliforníu. Íslenska lakkrísinn líka. Hvernig mér varð að ósk minni er ómögulegt að segja og vildi ég óska þess að ég hefði aldrei óskað þess að súkkulaðið yrði falið fyrir mér. Síst af öllu af mér sjálfri sem segir margt um takmarkaða heilastarfsemi mína og kenni ég alfarið dóttur minni um. Löngu búin að sjá út plúsana á foreldrahlutverkinu.

Nema auðvitað einhver hafi brotist hér inn á meðan við vorum í fríinu, án þess að skilja eftir nokkur ummerki eða stela nokkrum hlut, til þess eins að hafa af mér súkkulaðið. Eins og ég geti ekki bara keypt svoleiðis í Whole Foods núna. Það er verra með lakkrísinn. Þetta minnir óneitanlega á sápuóperuleyndardóminn í Chicago hérna um árið.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com