Opið bréf til ÁRM
Kæra ÁRM,
Vinkonu okkar (KH) finnst löngu komin tími til að þú heimsækir mig. Hún er satt að segja hneyksluð á framkomu þinni gagnvart mér og skammast sín að einhverju marki fyrir að þekkja þig. Hún hefur hugleitt að segja vinskapi sínum við þig á Facebook lausum en ég hef hvatt hana til hins gagnstæða vegna þess hve ég er örlát og tilbúin að fyrirgefa fólki. Þar sem KH er ekki eins vel af manni gerð og ég hefur hún ekki látið segjast. Að auki hefur hún reynt að fá mig til hins sama. Ég verð að áþekkjast að ég er einungis mannleg og það hefur hvarflað að mér að láta mig hverfa af Facebook með öllu. Það hefur ekkert með það að gera að þú átt þar fleiri vini en ég.
Af þessum sökum höfum við KH þó komið okkur saman um að hið eina sem þú getur gert í stöðunni, til að halda í vinskap okkar beggja, er að heimsækja mig. KH hefur fallist á að fylgja þér út og í sameiningu gætum við farið í skíðaferð til New Hampshire í nokkra daga. KH, ég er mjög stolt af þér. Ég er sannfærð um að þetta er rétt ákvörðun hjá þér. Þú ert sterkur einstaklingur og mér þykir meira til þín koma en ég áður hafði ímyndað mér.
Kæra ÁRM, ef þú hefur nokkurn áhuga á okkur lengur. Ef þér þykir á minnsta hátt vænt um okkur þá kemstu ekki hjá því að taka þessari áskorun.
Kærar kveðjur.

<< Home