Myndasíða
Jæja, sem nútímakona hef ég ákveðið að setja myndir á netið.
Þoli ekki að vera kona. Þegar ég skráði mig á myndasíðuna þurfti ég að kyngreina mig og velja aldursflokk, svo þau geti sent mér viðeigandi auglýsingar. Ég gat ekki sett mig í flokk 22-26 ára, né heldur 27-28 ára, heldur var ég tilneydd að haka við 29-47 ára, heiðarleikans vegna. Geta þeir ekki gert flokkana meira aðlaðandi fyrir fólk sem nálgast þrítugt og stendur enn í þeirri trú að því sé sama, þar til það þarf að velja aldursflokka á vefsíðum.
Reyndar hefur þetta framtak minna með nútíma minn að gera og er meira skylt því að mamma þarf að sýna vinkonum sínum á sýsló myndir úr brúðkaupinu og monta sig. Þetta stafar af því að ég á ekki eina einustu mynd úr brúðkaupinu á prenti. Fyrir utan nokkrar frá tengdapabba þar sem allir eru með lokuð augun eða eru ljótir því hann getur aldrei tekið venjulegar myndir. Hans aðferð felst í að koma manni sem mest á óvart á, kallar skyndilega svo maður lítur við og á von á dauða sínum, skelfingu lostinn... Hann segist vilja natural myndir, ekki uppstilltar. Af ljósmyndasafni hans að dæma á hann mjög ljóta fjölskyldu. En eðlilega.
Annars á hann mest, og sýnir, myndir af hundinum. Hundurinn við útidyrnar (lágmark ein fyrir hverja árstíð). Hundurinn við blómabeð. Hundurinn við arininn. Hundurinn vinstra meginn við arininn. Hundurinn vinstra meginn við arininn, öllu nær sjónvarpinu.
En smellið nú á tengilinn "myndir" hérna til hægri.
login: vigdishuld@hotmail.com
lykilorð: millinafn mitt.
Þetta er sko próf. Þeir sem muna ekki hvað ég heiti eru útskúfaðir úr myndaalbúminu mínu og mun ég segja vinskap mínum við þá lausum.

<< Home