sunnudagur, ágúst 29, 2004

Sigling

Þá er komið að brúðkaupsferð númer eitt, í boði tengdaforeldranna. Siglum með Norwegian Majesty til Bermuda í dag og erum mjög spennt.

Það upphófst mikið og stórt drama í gær þegar ég uppgötvaði að bikiniið mitt er horfið. Hringdi auðvitað beint í mömmu og fann hún það uppí skáp í sveitinni. Ég stend greinilega í þeirri meiningu að ég muni striplast meira í slagveðursrigningu heima heldur en 40 stiga hita hér í útlandinu. Og nú er svo heitt hérna að ég þarf bikiniið helst strax bara til geta verið í stofunni og horft á sjónvarpið. Loftkælingin er í svefnherberginu og annar ekki eftirspurn af köldu lofti hingað inn.

Mamma fékk líka að tala við Dave í bikiniissímtalinu og hann segir að hún sé "a dirty dog" því hún pantaði að barn verði búið til í þessari ferð. Við keyptum fullt af bókum í gær til að taka með. Pabbi varð bara hneykslaður:

"Ætlarðu að segja mér að þið getið ekki fundið ykkur neitt annað að gera í brúðkaupsferðinni en að lesa bækur? Djöfull eruð þið gömul. Okkur mömmu þinni dytti þetta ekki einu sinni í hug." Þessir foreldrar mínir eru ekkert að "beat around the bush!"

Brúðkaupsferð númer tvö er víst enn óákveðinn. Við vorum búin að koma okkur saman um að Dave mætti bara ráða og koma mér á óvart. En svo hröpuðu vélarnar í Rússlandi og nú þorir hann ekki að fljúga. Kem þessu öllu á hann!!! Hann vill umbreyta þessu í sameiginlega ákvörðun en ég segist vera svo líbó og frjálsleg að hann geti alveg ákveðið þetta sjálfur. Gef lítið upp um flughræðslu því mér finnst nú eins og þetta sé bara einhver taugaveiklun. Get samt ómögulega fengið sjálfa mig til að tilkynna honum að það sé ekkert mál að henda okkur á loft.

En nú þarf ég í sturtu og fara klæða mig í ferðapilsið. Kaupa líka mikið af sólarvörn fyrst ég er með rauðbirkinn íra í ítölskum dulbúningi sem ferðafélaga. Ég sjálf hef stór plön um að verða bara brún og sæt.

Reyni að vinka ykkur héðan. Adios.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com