Lögreglumítan útvíkkuð
Fór á bókasafnið í dag og lærði vel.
En þá að erindi þessa innleggs:
Á leiðinni heim var ég stopp á rauðu og handan við hornið sá ég glitta í blikkandi lögregluljós.
"Oh," hugsaði ég, "er nú eitthvað slys og umferðarteppa og leiðindi..."
Þegar ég svo keyrði nær þessari uppákomu sá ég að lögreglubílnum var lagt við ísbíl. Í lögreglubílnum voru tveir menn. Þeir biðu báðir spenntir. Konan í ísbílnum afgreiddi hröðum höndum handa þeim tvo ísa. Þetta var greinilega neyðartilfelli.
Sú míta, að þjónar laga og reglu hér í landi þrífist eingöngu á kleinuhringjum hefur í dag verið útvíkkuð. Þeim finnst ís ofsa góður líka.
Má ég svo að lokum benda á dagatalið mitt (tengill) hérna til hægri. Þar getið þið vakið athygli á mikilvægum atvikum í lífi ykkar að eigin list. Ég hef sjálf sett in tvö mikilvæg atvik sem renna munu upp á næstu dögum og ég vil ekki fyrir nokkra muni að þið missið af.

<< Home