Kosningar
Ted Kennedy hringdi í mig rétt í þessu. Vildi minna mig á að kjósa Andreu Capocinni sem sýslumann 14. september næstkomandi. Dave punktaði nafnið hjá sér. Þegar kemur að bæjarkosningum þá hefur minn maður takmarkaðann áhuga. Ég geng svo langt að segja að hann sé svo gott sem óupplýstur í þeim efnum. Ég tek þetta fram aðeins og einungis með því skilyrði að þið deilið ekki með eiginmanni mínum hvaða skoðanir ég hef á honum bakvið íslensku tjöldin.
Dave hefur að markmiði er að kjósa Andreu alls ekki. Í bæjarkosningum hefur hann sjaldan nokkurn að kjósa. Einungis langan lista af þeim sem hann ætlar ekki að kjósa. Það er útlit fyrir að hann þurfi sjálfur í framboð aftur.
Ég melda með mér að skrifa næst um pólitík. Mér finnst lesendur mínir, báðir tveir, svo áhugalausir um skvaldrið að ég neyðist til að kveikja aðeins uppundir þeim. Mér finnst lágmark að hafa eins og sjö skvaldur við hvert innlegg. Er skvaldur skvöldur í fleirtölu?* Þið megið taka þessu sem hótun, svo ég hárreiti mig ekki vegna stjórnmála í viðurvist ykkar. Það mun að öllum líkindum gerast af sjálfu sér í Nóvember. Þið hafið hér með verið vöruð við.
* Ritstjórar, hver er ykkar skoðun á þessu máli sem ég tel geta orðið umdeilt í íslenskri samtíð.

<< Home