Tónlistar-aðdáun
Það er ljóst að Duran Duran fór með diggan sigur í könnuninni góðu. Þessir Duran Duran aðdáendur eru diggir. Diggur sigur? Er það málvilla?
Mér er sama, ég er digga orðið diggur.
Kannski næsta könnun snúist um hvaða hljómsveitarmeðlimur Duran Duran, eða hvaða Taylor, var sætastur og með flottustu greiðsluna.
Ég mun ekki gefa upp fylgi mitt að svo stöddu. Látum nægja að segja að ég hafi verið digg. Margskonar nælur og Bravó plaggöt voru í minni eigu.
Annars var ég að fá ipod í útskriftargjöf frá manninum mínum og var það óvænt. Ég eyði nú kvöldunum í að hlaða öllum mínum diskum í tölvuna gegnum itunes. Ég get ekki beðið eftir að komast með puttana í stolna safnið hans Lance, sem hann hefur niðurhalað síðastliðið ár. Ég digga líka orðið niðurhala. Mér finnst það eitthvað svo sveitó. Það er líklega halinn í niðurhala sem orsakar það. En Lance á glæsilegt safn af 80's lögum. Laura og Josh eiga um 1000 eða svo sem nauðsynlega þurfa að finna sér leið á ipodinn minn.
Mér finnst ég rosalega pönk pía að koma með heyrnartól í eyrunum í vinnuna. Tilheyri pottþétt kúl kids hópnum.
Ekki spillir að ég fer á aðra tónleika með Keane 4 júni. Keypti ég miðana gegnum vefsíðuna þeirra og verð beint fyrir framan sviðið í sætaröð númer tvö. Ég er augljóslega einum píkuskræk frá því að gerast grúppía og ekki öruggt hvernig ég mun hegða mér á þessum tónleikum.
Kannski ég verði nýja kynslóðin af Aðdáanda Númer Eitt. Mér skilst að sýslumaður Árnessýslu sé íslandsaðdáandi númer eitt fyrir Rolling Stones. Ég get orðið hliðstæða hans, fulltrúi Britt og emo* popps.
* Emo: stytting á emotional pop music.

<< Home