miðvikudagur, október 20, 2004

Hver er maðurinn?





Fyrir og eftir myndir! Þessi neðri er ekki mug shot. Hann þurfti í myndatöku á fyrsta vinnudeginum. Svo þarf hann kannski að fara til Atlanta fljótlega í viku að skoða fullt herbergi af skjölum. Ekki mikil ánægja með það.

Steve var í vinnunni til miðnættis í gær. Þeir eru báðir komnir með svokallað Blackberry, á vegum fyrirtækisins, sem er svona lófatalva með tölvupósti svo nú er hægt að ná í þá öllum stundum. Það er kvartað sárlega þessa dagana. Dagar taldir og mikið spáð í hvort þeir nái að endast eitt ár eða tvö. Hvað eigi þeir að gera í staðinn og hvernig komist þeir útúr þessari atvinnuklemmu sem allra fyrst. Og hvernig í ósköpunum gátu þeir verið svona miklir hálvitar að fara í laganám!
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com