Tungumálaörðugleikar
Aðdáendur mínir hér vestan hafs gagnrýna mig stundum fyrir að blogga ekki á ensku. Eiginmaðurinn vísar til íslenskra kunningja sem yfirgefa móðurmálið á netinu. Ég hef tekið athugasemdir þessar til athugunnar og mun hugleiða á næstu dögum, með það í huga að ég tel mig jafn hæfileikamikla á enskri tungu og íslenskri.
Ég er einkanlega meðvituð um þau kraftaverk sem sem tvítyngd síða myndi gera fyrir teljarann.
Vandamálið er hinsvegar að ef hluti aðdáenda minna hér fyrir vestan væru í raun og sanni færir um að lesa orð mín væru þeir varla aðdáendur mínir öllu lengur. Til að halda þeim í dyggum hópi áfylgjenda yrði ég að skera efniviðinn við nögl. Innleggin yrðu hugsanlega styttri, sem ég freistast til að kalla ákveðinn plús. Hættan er sú að innleggin yrðu einnig færri. Gætu þá íslenskir fylgjendur mínir, sem dyggir eru, hugsanlega týnt tölunni.
Það má því segja að ég sé hér að velja á hjartnæman hátt milli gamalla og nýrra velunnara. Hef ég hingað til kosið antíkina framyfir nýjabrumið og, gott fólk, óska þess að það verði metið að verðleikum.
Fer sjálfsagt milliveginn og fjölga slettum. Að svo stöddu útiloka ég því ekki þann möguleika að taka út auglýsingu í mogganum: "Óska eftir lesendum, aðdáendum og öðrum allsherjar áhangendum; engar kröfur gerðar um gæði, skemmtilegheit né leshæfileika. Höfum ekki efni á slíku punti hér á bæ. Með þökk."
P.s. Mér finnst dagatalið svo fátæklegt að ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi ekki að skrá þar hjá mér tíðahringinn.
Ef ég gæti svo einhvern vegin tímasett mig nákvæmlega með fullu, hálfu og nýju tungli þyrftuð þið á endanum ekki einu sinni að ráðfæra ykkur við dagatalið. Einhverjar athugasemdir?

<< Home