Meistari Vigdís
Ég fór í gegnum formlega útskriftarathöfn um helgina. Ég á skírteini sem sannar gráðu númer tvö. Ég hef lítið á móti að vera kölluð meistari Vigdís héðan í frá. Ég hef hugsað mér að setja: Vigdís Þ...., Alþjóðatengslafræðingur í símaskrána því það er svo þjált.
Myndasíðan segir söguna vel. Vonandi niðurhalast hún á mettíma. Ég ætla reyna læra fljótlega að gera margramyndasíður, einnig þjált orð, með þumalputtamyndum sem hægt er að smella á. Þangað til verður allt gert á gamla mátan. Er það um sjö mánaða gamall máti. Ég hef ekki kunnað að setja upp myndir lengur en það.
Ég hvet ykkur til að skoða Magical Trevor.

<< Home