fimmtudagur, maí 26, 2005

Blogg

Það hefur nýlega hvarflað að mér að breyta um bloggstíl. Ég var að skoða bloggið hennar Öldu. Henni fannst hún svo leiðinleg einn daginn að hún vitnaði í bróður sinn, sem er víst skemmtilegri en hún.

Ég er að vonast til að Alda vitni meira í bróður sinn í framtíðinni. Ég hef nefnilega hugsað mér að vitna í Öldu í framtíðinni og þætti mér vænt um að vitna í Öldu þegar hún vitnar í bróður sinn. Best þætti mér ef bróðir hennar sæji sér fært að vitna örlítið í aðra. Þá gæti ég að komist af með fjórfalda tilvitnun í einni tilvitnun. Fimmfalda með heppni. Það myndi toppa allt mitt blogg ef bróðir hennar gæti hugsanlega vitnað í mig. Ég kann nú varla við að biðja hann um það þar sem ég hef aðeins hitt hann einu sinni eða tvisvar á ævinni. En hringblogg, það væri skemmtilegt og er eitthvað sem mig hefur nú tekið að dreyma um.

Annars datt mér líka í hug að stæla pólitísk blogg. Þá gæti ég vitnað í önnur blogg og tjáð mig svo um það sem ég er að vitna í. Í þessu tilviki tel ég ekki viturlegt að vitna í fjölskyldu, vini eða ættingja vina minna.

Ég sé ekki fram á að nokkur maður nenni, til langs tíma, að lesa athugasemdir mínar um annara manna athugasemdir, nema mínar athugasemdir séu yfirhöfuð niðrandi, nastí og neikvæðar með klípu af mikilmennskubrjálæði.

Ég sé ekki fram á annað en að þessi nýji stíll muni eyðileggja allan minn vinskap og ættartengsl, í öðru veldi, við systkini og frænkur vina minna. Tel ég einnig ólíklegt að það væri vinsælt ef ég vitnaði í tölvupósta frá vinkonum þar sem þær tjá sig um sín innstu hjartans mál. Né heldur ef ég til dæmis kvartaði yfir lélegri stafsetningu eða klúðurslegu málfari í þessum tölvupóstum. Sérstaklega í ljósi þess að íslensku kunnátta mín hefur farið hrakförum undanfarin ár og stafsetningarkunnátta, fyrrum upp á 10 (9.5 ef ég er hreinskilin. Þetta gæti litið út sem eitthvert greindarvísitölumont. Það er ljóst að ég mun ekki tilkynna einkunnir í stærðfræði, þó þær myndu gíra greindarvísitölumontið niður. Og ég mun ekki ræða einkunnir vina minna í niðrandi, nastí eða neikvæðum tón með vott af mikilmennskubrjálæði) er nú í mesta lagi upp á 7 (6.5 ef ég er hreinskilin).

Ég er að svo stöddu óviss um hvernig ég mun hegða stílbreytingu á þessu bloggi. Ég gæti vitnað í ókunnuga en hver nennir að lesa það? Ekki ég.

Ég gæti líka vitnað í stjórnmálamenn en þá verður niðrandi, nastí og neikvæður tónn með öllu óumflýjanlegur og ég gæti hreinlega misst mig í móðursýki. Það hefði kannski einhver gaman að þessu síðastnefnda.

Ég ætti kannski að hafa könnun um það.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com